Fyrsta kvennamótið á morgun

Nesklúbburinn

Fyrsta kvennamót NK-kvenna fer fram á morgun, þriðjudaginn 16. maí.  Formið er það sama og áður, bara mæta og skrá sig í kassanum góða í veitingasölunni áður en leikur hefst.  Mótin eru góður vettvangur fyrir bæði þær sem eru að stíga sín fyrstu skref í þátttöku í mótum sem og lengra komnar sem vilja lækka forgjöfina.

Reglugerð fyrir þriðjudagsmótin má sjá nánar á nkgolf.is