Um helgina fór fram annað mót Unglingamótaraðar GSÍ og fyrsta mót Golf14 mótaraðarinnar á Kirkjubólsvelli í Sandgerði.
Nesklúbburinn átti 10 keppendur á Golf14 mótinu sem stóðu sig með mikilli prýði og náðu þrír þeirra verðlaunasæti í sínum flokkum.
Elísabet Þóra Ólafsdóttir sigraði 36 holu mót 14 ára og yngri stúlkna, og í 9 holu móti 12 ára og yngri drengja sigraði Jón Agnar Magnússon. Þá endaði Gunnar Helgi Kristinsson í öðru sæti í sama flokki og til gamans má geta að Nesklúbburinn átti 4 af efstu 7 kylfingunum flokknum.
Á Unglingamótaröðinni átti Nesklúbburinn þrjá keppendur í flokki 15-16 ára pilta sem spiluðu flott golf og voru allir stóran hluta mótsins í efstu 10 sætunum. Að lokum var það Skarphéðinn Egill Þórisson sem náði bestum árangri, en hann lék hringina þrjá á samtals einu höggi yfir pari og endaði í 6. sæti.
Nánari umfjöllun um mótin má finna hér.
Skoða lokastöðu í Unglingaflokki
Skoða lokastöðu í Golf14
Glæsilegur árangur hjá krökkunum okkar sem voru sér og klúbbnum til mikils sóma bæði innan sem utan vallar.
Myndir: golf.is