Dagana 10.–11. júní tóku ellefu krakkar úr Nesklúbbnum þátt í skemmtilegri golfhátíð á Akranesi fyrir 11–14 ára kylfinga. Um 80 þátttakendur úr 10 golfklúbbum komu saman og nutu fjölbreyttrar dagskrár sem íslenskir landsliðs- og atvinnukylfingar stýrðu.
Á dagskránni voru fjölbreyttir golftengdir leikir og þrautir, en einnig var boðið upp á spurningakeppni, sundferð og gistingu í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Hátíðin heppnaðist einstaklega vel og fóru allir heim með bros á vör og góðar minningar í farteskinu.