Þriðja mót Unglingamótaraðarinnar og annað mót Golf 14 fóru fram um helgina hjá GKG og átti Nesklúbburinn 14 þátttakendur í mótunum. Júlí Róbert Helgason og Felix Leó Helgason lentu í 2. og 3. sæti í flokki 12 ára og yngri drengja, sem spiluðu 9 holur á Mýrinni, og Elísabet Þóra Ólafsdóttir endaði í 3. sæti í flokki 14 ára og yngri stúlkna, sem spiluðu 36 holur í Leirdalnum. Allir keppendur okkar stóðu sig virkilega vel og voru sem fyrr sjálfum sér og klúbbnum til mikils sóma.
Hægt er að lesa meira um mótin og sjá öll úrslit á golf.is með því að smella hér.
.
Myndir frá golf.is