Kæru félagsmenn,
Það er með mikilli sorg sem við tilkynnum að Hjalti Arnarson, félagsmaður til fjölda ára og starfsmaður Nesklúbbsins, varð bráðkvaddur á heimili sínu síðastliðna nótt.
Hjalti var vel þekktur og kær meðal félagsmanna og hafði með störfum sínum og nærveru orðið stór partur af daglegu lífi í Nesklúbbnum.
Við vottum fjölskyldu og ástvinum okkar innilegustu samúð
Blessuð sé minning Hjalta
Stjórn Nesklúbbsins

