Hreinsunardeginum frestað til Uppstigningardags

Nesklúbburinn

Hreinsunardeginum og um leið fyrsta móti sumarsins sem stóð til að halda núna á laugardaginn hefur verið frestað til fimmtudagsins 10. maí sem er Uppstigningardagur.  

Eitt meginverkefnið sem fyrir liggur þennan hreinsunardag er að þökuleggja hluta þeirra nýframkvæmda sem gerðar hafa verið á vellinum í vetur.  Vegna óhagstæðra veðurskilyrða um mest allt land undanfarið og eins og veðurspáin lítur út fyrir næstu daga hefur verið ákveðið að fresta formlegri opnun sumarsins.

Hreinsunardagurinn verður því haldinn eins og áður sagði fimmtudaginn 10. maí og hefst stundvíslega klukkan 09.45. 

Hlökkum til að sjá ykkur öll þá,

Vallarnefnd