Innheimta félagsgjalda 2015

Nesklúbburinn

Að vanda verða félagsmönnum boðnar þrjár leiðir til að standa skil á félagsgjöldum sínum, nú fyrir árið 2015 og eru þær eftirfarandi:

1.  VISA/EURO: dreift á 6 jafnar greiðslur, fyrsta greiðsla í byrjun janúar.
2.  Einn greiðsluseðill: Eingreiðsla með gjalddaga 1. janúar 2015 og eindaga 15. janúar 2015.
3.  Fjórir greiðsluseðlar: Dreift á fjórar jafnar greiðslur, gjalddagar 1. janúar, 1. febrúar, 1. mars og 1. apríl og eindagar 15. hvers mánaðar.

Þeir sem vilja breyta greiðslufyrirkomulagi sínu frá fyrra ári þurfa að láta vita á netfangið nkgolf@nkgolf.is fyrir föstudaginn 19. desember – ekki verður tekið við breytingum eftir þann tíma.

ATH: það þarf EKKI að láta vita ef halda skal greiðslufyrirkomulagi óbreyttu frá fyrra ári

Mikilvægt: Þeir sem velja leið 2 eða 3, þ.e. greiðsluseðla, þá verður sú breyting á að ekki verða sendir út greiðsluseðlar nema að viðkomandi óski þess sérstaklega.  Greiðsluseðlarnir munu að óbreyttu eingöngu birtast í heimabanka viðkomandi.  Óski félagsmenn þó sérstaklega eftir því að fá senda greiðsluseðla þarf að láta vita á nkgolf@nkgolf.is


MUNIÐ: ALLAR ÓSKIR EÐA BREYTINGAR ÞARF AÐ TILKYNNA FYRIR FÖSTUDAGINN 19. DESEMBER