Innheimta félagsgjalda – ertu nokkuð að gleyma þér

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæru félagar,

Eins og fram hefur komið stendur nú yfir innheimta félagsgjalda fyrir árið 2026.  Allir sem völdu það að skipta greiðslum inni í Sportabler eiga nú að hafa greitt tvær greiðslur hið minnsta.  Fyrir ykkur sem staðið hafa í skilum að þá þurfið þið ekki að lesa lengra.

Hinsvegar eru einhverjir sem eru í vanskilum og reyndar nokkrir sem ekki hafa greitt neitt.  Þeim kröfum fylgja orðið dráttarvextir og viðkomandi jafnvel borist innheimtukröfur frá Motus.  Við hvetjum alla til að standa skil á þessum kröfum sem fyrst svo ekki safnist upp frekari innheimtukostnaður.  Við minnum á að eindagi félagsgjalda er 15. febrúar eins og fram kemur á heimasíðu klúbbsins.  Þeir félagsmenn sem enn hafa ekkert greitt þann 20. febrúar verða því teknir af félagaskrá og öðrum hleypt að í staðinn.  

Mikilvægt: þeir sem greiddu félagsgjöld sín 2025 með öðru fyrirkomulagi en í gegnum Sportabler og hafa hug á að gera slíkt hið sama aftur fyrir 2026 verða að hafa samband á netfangið: nkgolf@nkgolf.is og óska eftir því sérstaklega þar sem slíkt greiðslufyrirkomulag endurnýjast ekki sjálfkrafa.

Þeir sem ekki hafa greitt neitt og ætla að hætta í klúbbnum mega vinsamlegast láta vita á netfangið nkgolf@nkgolf.is til að forðast fleiri innheimtubréf.

þeir félagsmenn sem ekki hafa greitt neitt og hafa ekki látið vita fyrir 20. febrúar verða tekin af félagalista og nýjum boðið plássið.

Ef einhverjar spurningar eru eða eitthvað er óljóst ekki hika við að hafa samband á netfangið: nkgolf@nkgolf.is

Gjaldkeri