Íslandsmót golfklúbba er um helgina

Nesklúbburinn

Íslandsmót golfklúbba 2016 fer fram nú um helgina.  Keppnin sem áður hét Sveitakeppni GSÍ er keppni á milli allra golfklúbba, skipt upp eftir deildum þar sem lið hvers klúbbs er skipað 6-8 kylfingum.  Þessa helgina er keppt á milli A-sveita klúbbanna og tekur Nesklúbburinn að sjálfsögðu þátt.  Kvennasveitin keppir í 2. deild á Garðavelli á Akranesi og karlasveitin í 2. deild á Vestmannaeyjavelli.  Allar upplýsingar nánari upplýsingar um fyrirkomulag og úrslit má nálgast á golf.is

Liðsskipan A-sveitar kvenna:

Ágústa Dúa Jónsdóttir
Bjargey Aðalsteinsdóttir
Elsa Nielsen
Helga Kristín Gunnlaugsdóttir
Ragna Björg Ingólfsdóttir
Ragna Kristín Guðbrandsdóttir

Liðsstjóri: Ágústa Dúa Jónsdóttir

Liðsskipan A-sveitar karla:

Guðmundur Örn Árnason
Kristinn Arnar Ormsson
Kristján Björn Haraldsson
Lárus Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson
Orri Snær Jónsson
Ólafur Marel Árnason
Steinn Baugur Gunnarsson

Liðsstjóri: Nökkvi Gunnarsson