Íslandsmót golfklúbba í unglingaflokkum hófst í morgun

Nesklúbburinn

Íslandsmót golfkúbba í unglingaflokkum hófst í morgun. Nesklúbburinn sendir tvær sveitir til keppni, annars vegar í flokki drengja 15 ára og yngri sem leikin verður á Akranesi og hinsvegar í flokki pilta 18 ára og yngri sem leikin verður á Hellu.  Mótið byrjaði í morgun og verður hægt að fylgjast með framvindu allra strákanna okkar á golf.is.  Liðin Nesklúbbsins eru þannig skipuð:

Flokkur 15 ára og yngri:

Haraldur Björnsson
Heiðar Steinn Gíslason
Pétur Orri Pétursson
Tómas Karl Magnússon
Viktor Orri Sölvason

Liðsstjóri: Steinn Baugur Gunnarsson

Flokkur 18 ára og yngri:

Birkir Blær Gíslason
Ingi Hrafn Guðbrandsson
Ólafur Marel Árnason
Ólafur Ingi Jóhannesson
Magnús Máni Kjærnested

Liðsstjóri: Nökkvi Gunnarsson