Fyrsta mótið í mótaröð krakka og unglinga fór fram á Nesvellinum í dag. Þrátt fyrir fínt golfveður var óvenju fámennt í þessu fyrsta móti en aðeins 12 þátttakendur voru skráðir til leiks. Leiknar voru 9 holur og voru veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í punktakeppni með fullri forgjöf. Helstu úrslit urðu eftirfarandi:
1. sæti – Þórir Lárusson – 18 punktar
2. sæti – Sverrir Anton Arason – 16 punktar
3. sæti – Óskar Dagur Hauksson – 16 punktar
Næsta mót í mótaröðinni verður miðvikudaginn 18. júlí.
Frekari úrslit úr mótinu má sjá hér.