Kick-off fundur NK-kvenna – skráningu að ljúka

Nesklúbburinn

Kæru NK Konur

Fjölmargar konur hafa nú skráð sig á kick-off fundinn sem verður haldinn á morgun.  Nú eru síðustu forvöð þar sem að skráningu lýkur kl. 15.00 í dag, mánudaginn 2. maí.

Fundurinn verður eins og áður sagði haldinn þriðjudaginn 3. maí kl. 18 í golfskálanum okkar. Ætlunin er að koma saman og borða létta máltíð, fara yfir nýjar reglur vallarins ásamt mótum sumarsins sem kvennanefndinn stendur fyrir.   Þá verður Púttmeistari kvenna, maí 2016 krýnd. 

Boðið verður upp á tískusýningu frá Abacus þar sem sýnt verður allt það nýjasta í golftískunni. Einnig verður ýmislegt annað skemmtilegt til sölu sem kemur að góðum notum í golfi. 

Við viljum með þessu bjóða ykkur NK-konum upp á að styrkja tengslin og sameinast um kröftugt spilasumar einnig bjóðum við nýja meðlimi klúbbsins sérstaklega velkomnar.

Verð kr: 2500.-   Vinsamlega skráðu þig hér eða með því að senda tölvupóst á póstfangið: kvennanefnd@nkgolf.is

Hlökkum til að sjá ykkur sem flestar

Bestu kveðjur,

Kvennanefndin
Fjóla og Bryndis