Lokadagur meistaramóts – úrslit í 1. og 2. flokki karla

Nesklúbburinn

Það ringdi þónokkuð þegar fyrstu hollin fóru út hjá öðrum flokki karla klukkan sjö í morgun. Það var þó logn og blíða og ekki hægt að kvarta yfir aðstæðum. Úrslit réðust í 1. og 2. flokki karla fyrir hádegi en þar báru sigur úr býtum Kristinn Karl Jónsson í 1. flokki og Hinrik Þráinsson í 2. flokki. Hamingjuóskir til þeirra.

2. flokkur karla – úrslit

Hinrik Þráinsson vann góðan sigur í öðrum flokki karla á 335 höggum samtals, en Hinrik tók forystu eftir annan hring og lét hana ekki af hendi. Spennan var þó í hámarki á lokahringnum og sigurinn tæpur því höggi á eftir Hinrik var Hólmsteinn Björnsson á 336 höggum. Þriðji varð Þorsteinn Guðjónsson á 341 höggi samtals.

Staða

Kylfingur

Fgj.

Dagar

Alls

       

D1

D2

D3

D4

Alls

Mismunur

1

Hinrik Þráinsson

11

       

87

80

84

84

335

47

2

Hólmsteinn Björnsson

12

       

82

88

84

82

336

48

3

Þorsteinn Guðjónsson

13

       

83

90

82

86

341

53

1. flokkur karla – úrslit

Kristinn Karl Jónsson bar sigur úr býtum í 1. flokki karla og var ellefu höggum betri en næsti maður. Kristinn Karl var í forystu frá fyrsta degi og sigurinn nokkuð öruggur. Kristinn Karl lék sinn lakasta hring í mótinu í dag en hans helstu keppinautar náðu ekki að nýta sér það í vil og léku flestir einnig sinn lakasta hring. Það fór því svo að Kristinn hafði sigur á 301 höggi samtals. Annar varð Gunnlaugur H Jónsson á 312 höggum og þriðji Rósant Freyr Birgisson á 314 höggum.

Staða

Kylfingur

Fgj.

Dagar

Alls

       

D1

D2

D3

D4

Alls

Mismunur

1

Kristinn Karl Jónsson

5

       

71

75

75

80

301

13

2

Gunnlaugur H Jóhannsson

6

       

74

77

81

80

312

24

3

Rósant Freyr Birgisson

3

       

80

79

72

83

314

26