Laugardaginn 11. júlí lýkur 51. Meistaramóti Nesklúbbsins formlega. Verðlaunaafhending fer fram stundvíslega kl. 19.30 þar sem allir verðlaunahafar mótsins eru hvattir til að mæta. Í framhaldinu verður lokahóf þar sem boðið verður uppá glæsilegt veisluhlaðborð og frábær skemmtiatriði. Skráning á lokahófið fer nú fram á skrifstofunni og lýkur föstudaginn 10. júlí. Dagskrá kvöldsins er eftirfarandi:
19.45 – verðlaunaafhending
21.00 – Borðhald og skemmtiatriði
Meðal skemmtiatriða verða uppistandarinn Dóri DNA og söngvararnir Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson