Lokamót kvenna á sunnudaginn

Nesklúbburinn

Lokamót NK kvenna verður haldið sunnudaginn 24. ágúst á Nesvellinum. Mæting er kl. 9.30 og verður ræst út kl. 10.00 á öllum teigum. 

Keppt verður í þremur forgjafarflokkum. Mótið er 9 holu punktakeppni.

Forgjafarflokkur I: Grunnforgjöf: 0 – 19,9
Forgjafarflokkur II: Grunnforgjöf: 20- 29,9
Forgjafarflokkur III: Grunnforgjöf: 30-42

Að móti loknu verður boðið upp á ljúfenga og matmikla súpu að hætti Kristjáns og verðlaunaafhendingu.

  • Veitt verða verðlaun fyrir 1.- 3. sæti í hverjum flokki,
  • Fyrir lengsta upphafshögg á 1. braut, þarf ekki að vera á braut
  • Nándarverðlaun á 2. og 5. Holu, þarf ekki að vera á flöt.
  • Einnig verður dregið úr skorkortum margt góðra vinninga.
  • Áslaugarbikarinn afhentur.

Skráning er í gangi á golf.is og lýkur föstudaginn 22. ágúst. Einnig er hægt að skrá sig á skrifstofu klúbbsins í síma 561 1930 á milli kl. 9 og 16. Gjald fyrir mat og mót er 3.000 kr.

Við þökkum fyrir frábæra þátttöku í sumar og hlökkum til að sjá ykkur á sunnudaginn!