Lokamót kvenna á sunnudaginn

Nesklúbburinn

Lokamót NK kvenna verður haldið sunnudaginn 28.ágúst á Nesvellinum.
Mæting er kl. 16.15, þá bjóðum við ykkur kæru NK konur upp á létta hressingu áður enn ræst verður út kl. 17.00 á öllum teigum. 

Mótið er 9 holu punktakeppni

keppt verður í Tveimur forgjafarflokkum:

Forgjafarflokkur I: vallarforgjöf  0 ? 24

Forgjafarflokkur II: vallarforgjöf 25 – 42
 

Að móti loknu verður verðlaunaafhending og boðið upp á ljúfengan mat að hætti Veislunnar . 

Veitt verða verðlaun fyrir 1.- 3. sæti í báðum flokkum

Lengsta upphafshögg á 1. braut (þarf að vera á braut),

Nándarverðlaun á 2. og 5. braut (þarf ekki að vera á flöt).
 

Áslaugarbikarinn afhentur

Að lokum verður dregið úr skorkortum. 

Gjald fyrir Happy hour, mót og mat er  3.900 kr. 

Opnað verður fyrir skráningu á golf.is mánudaginn 22. ágúst. Ath. skráning á netinu er eingöngu til að raða í holl, ræst verður út af öllum teigum samtímis kl. 17.00.  Einnig er hægt að skrá sig á skrifstofu klúbbsins í síma 561 1930 á milli kl. 9 og 16.

Við þökkum fyrir frábæra þátttöku í sumar og hlökkum til að sjá ykkur sem flestar! 

Bestu golfkveðjur,

Kvennanefndin