Lokamót kvenna

Nesklúbburinn

Lokamót NK kvenna verður haldið Þriðjudaginn  29. ágúst á Nesvellinum.

Mæting er kl. 17.00 og ræst verður út kl. 17.30 á öllum teigum. 

Mótið er 9 holu punktakeppni

keppt verður í tveimur forgjafarflokkum. 

Forgjafarflokkur I: vallarforgjöf  0 – 24 Forgjafarflokkur II: vallarforgjöf 25 – 42

Að móti loknu verður verðlaunaafhending og boðið upp á ljúfengan mat að hætti Hafsteins.
                                                                                                                                                                    Veitt verða verðlaun fyrir 1.- 3. sæti í hvorum flokki.

Lengsta upphafshögg (þarf að vera á braut),

Nándarverðlaun á 2. og 5. holu, (þarf ekki að vera á flöt).

Annað högg á 8. braut

Áslaugarbikarinn afhentur

Að lokum verður dregið úr nokkrum skorkortum.

Gjald fyrir Happy hour, mót og mat er  3.900 kr.

Opnað verður fyrir skráningu á golf.is mánudaginn 21. ágúst. Ath. skráning á netinu er eingöngu til að raða í holl, ræst verður út af öllum teigum samtímis kl. 17.00.  Einnig er hægt að skrá sig á skrifstofu klúbbsins í síma 561 1930 á milli kl. 10 og 16.

Við þökkum fyrir þátttökuna í sumar og hlökkum til að sjá ykkur sem flestar í lokamótinu !

Bestu golfkveðjur,
Kvennanefndin