Metskráning í Meistaramótið 2024

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Meistaramót klúbbsins 2024 hófst í gær þegar að barna- og unglingaflokkar hófu leik.  Skráning í forgjafar og fullorðinsflokka lauk í gærkvöldi og endaði það svo að nýtt þátttökumet var slegið.  Á þessu 60 ára afmælisári klúbbsins eru 232 þátttakendur skráðir til leiks í 19 flokkum og er þetta því algjör veisla sem stendur yfir og framundan er.  Flestir þátttakendur eru í 3. flokki karla en heilt yfir er góð skráning á öllum vígstöðum og geta keppendur farið að hlakka til því búast má við spennandi keppni í öllum flokkum.  Nú liggur fyrir endanleg niðurröðun á rástímatöflunni og er hún hér birt með þessari frétt.  Taflan er að sjálfsögðu birt með fyrirvara um breytingar.  Rástímar fyrir laugardaginn verða svo birtir á Golfbox á morgun, föstudag, og þar má fylgjast með öllum úrslitum mótsins.