Mót nr. 2 í októbermótaröðinni á morgun

Nesklúbburinn

Vegna tæknilegra örðuleika var því miður ekki hægt að setja þessa tilkynningu fyrr inn á síðuna og biðjumst við velvirðingar á því. 

Þar sem að veðurspáin er góð fyrir morgundaginn verður annað mótið í októbermótaröðinni að sjálfsögðu haldið á morgun.  Síðasta sunnudag mættu aðeins færri en vonast hafi verið til og því hvetjum við alla til að mæta á morgun, taka þátt í skemmtilegu móti og styðja gott málefni.

Eins og venjulega er hægt að hefja leik á milli kl. 11.00 og 13.00.  Annars eru leikreglur í mótunum eftirfarandi:

Mótin eru innanfélagsmót þar sem leiknar verða 9 holur, punktakeppni með fullri forgjöf.  Þátttökugjald er kr. 1.000.

Allur ágóði mótaraðarinnar rennur óskiptur til æfingaferðar unglinga sem farin verður næsta vor.  Það er því um að gera að lengja tímabilið, taka þátt í skemmtilegum mótum til styrktar góðs málefnis og að sjálfsögðu að taka einn eða tvo félaga með.

Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í hverju móti en einnig verða gefin stig fyrir fyrstu fimm sætin í hverju móti og mun stigahæsti kylfingurinn að mótaröðinni lokinni standa uppi sem sigurvegari og hljóta vegleg verðlaun.  Stigagjöfin verður eftirfarandi:

  1. sæti: 5 stig
  2. sæti: 4 stig
  3. sæti: 3 stig
  4. sæti: 2 stig
  5. sæti: 1 stig

Mótin verða haldin á hverjum sunnudegi út október svo framarlega sem veður leyfir og verður það tilkynnt hér á nkgolf.is eigi síðar en á föstudeginum fyrir hverja helgi hvort af móti verður.  Foreldraráð áskilur sér þó rétt til breytinga eftir það ef það metur aðstæður sem svo.