Októbermótaröðin af stað á sunnudaginn

Nesklúbburinn

Októbermótaröðin, samskonar þeirri sem haldin var í fyrra, fer af stað sunnudaginn 7. október næstkomandi.  Mótin eru innanfélagsmót þar sem leiknar verða 9 holur, punktakeppni með fullri forgjöf.  Þátttökugjald er kr. 1.000.  Mótin hefjast kl. 11.00 og er hægt að hefja leik til kl. 13.00.

Allur ágóði mótaraðarinnar rennur óskiptur til æfingaferðar unglinga sem farin verður næsta vor.  Það er því um að gera að lengja tímabilið, taka þátt í skemmtilegum mótum til styrktar góðs málefnis og að sjálfsögðu að taka einn eða tvo félaga með.

Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í hverju móti en einnig verða gefin stig fyrir fyrstu fimm sætin í hverju móti og mun stigahæsti kylfingurinn að mótaröðinni lokinni standa uppi sem sigurvegari og hljóta vegleg verðlaun.  Stigagjöfin verður eftirfarandi:

  1. sæti ? 5 stig
  2. sæti ? 4 stig
  3. sæti ? 3 stig
  4. sæti ? 2 stig
  5. sæti ? 1 stig

Mótin verða haldin á hverjum sunnudegi út október svo framarlega sem veður leyfir og verður það tilkynnt hér á nkgolf.is eigi síðar en á föstudeginum fyrir hverja helgi hvort af móti verður.  Foreldraráð áskilur sér þó rétt til breytinga eftir það ef það metur aðstæður sem svo.