Kæru félagar,
Mótaskráin 2025 hefur nú verið birt hér á síðunni undir flipanum mótaskrá. Þar má sjá öll mót sem haldin verða á vegum klúbbsins. Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér mótaskránna og um leið að lesa ávallt fyrirkomulag mótanna sem birt verður inni á golfbox þegar nær dregur undir „upplýsingar“ um hvert mót.
Meistaramótið verður sömu viku og síðasta sumar þó svo að það nái aðeins lengra inn í júlí. Meistararmót barna og unglinga verður haldið 3.-4. júlí og Meistaramót annarra flokka hefst laugardaginn 5. júlí.
Ecco Bikarkeppnin verður leikin með sama sniði og undanfarin ár þar sem fastir leikdagar verða fyrir hverja umferð. Þá ætlum við að endurvekja Draumahringinn (Eclectic).
Svo minnum við á að félagsmenn hafi það í huga að þegar það skráir sig í mót er það búið að skuldbinda sig fyrir settan rástíma og skal eftir fremsta megni reyna að mæta á tilsettan tíma. Afskráning í mót eða viðburð er heimiluð allt að sólahring fyrir mótið.
Mótanefnd