Mótaskrá 2026

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar Full aðild

Kæru félagar,

Mótaskráin 2026 hefur nú verið birt hér á síðunni undir flipanum mótaskrá.  Þar má sjá öll mót sem haldin verða á vegum klúbbsins.  Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér mótaskránna og um leið að lesa ávallt fyrirkomulag mótanna sem birt verður inni á golfbox þegar nær dregur undir „upplýsingar“ um hvert mót.

Eins og áður hefur komið fram verður Meistaramót forgjafar- og heldri kylfinga 4. – 11. júlí.  Meistararmót barna og unglinga verður haldið 10.-12. ágúst.

Ecco Bikarkeppnin verður leikin með sama sniði og undanfarin ár þar sem fastir leikdagar verða fyrir hverja umferð.  Forkeppnin verður haldin fimmtudaginn 14. maí sem er uppstigningardagur.

Svo minnum við á að félagsmenn hafi það í huga að þegar það skráir sig í mót er það búið að skuldbinda sig fyrir settan rástíma og skal eftir fremsta megni reyna að mæta á tilsettan tíma.  Afskráning í mót eða viðburð er heimiluð allt að sólahring fyrir mótið.

Mótanefnd