Mótaskrá sumarsins komin inn á golf.is

Nesklúbburinn

Mótaskrá sumarsins á Nesvellinum er nú að mestu tilbúin og er nú aðgengileg inni á golf.is.  Mótaskráin er með svipuðu sniði og undanfarin ár í fjölda viðburða. 

Hreinsunardagurinn verður haldinn laugardaginn 5. maí en þá opnar einnig golfskálinn formlega fyrir sumarið.  Meistaramót klúbbsins verður haldið 30. júní – 7. júlí og verða dagsetningar eða niðurröðun allra flokka tilbúin um miðjan maí og verða allar upplýsingar þá birtar á heimasíðu klúbbsins.  nánari upplýsingar má sjá inni á golf.is og eru félagsmenn hvattir til þess að kynna sér dagskrá sumarsins þar og eftir 25. apríl inni á heimasíðu klúbbsins, nkgolf.is

Mótaskráin er birt með fyrirvara um breytingar en nánari tímasetningar fyrir hvert mót verða birtar þegar nær dregur hverju sinni.