NESSKIP – Styrktarmót unglinga á fimmtudaginn – opið mót

Nesklúbburinn

Fimmtudaginn 25. maí, verður haldið styrktarmót þar sem allur ágóði rennur til unglingastarfs Nesklúbbsins. Mótið er haldið í samstarfi við NESSKIP.

Leikið verður eftir punktafyrirkomulagi og veitt verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í punktakeppni með forgjöf og fyrir besta skor. Einnig verða nándarverðlaun á par 3 holum.

Mótið er opið öllum kylfingum.

Hámarksforgjöf gefin: karlar: 28 og konur: 36.

VERÐLAUN:

PUNKTAKEPPNI

1. sæti: Steikarveisla á Steikhúsinu fyrir tvo og gjafabréf á Nesvöllinn fyrir tvo 2017
2. sæti: 15.000 gjafabréf á ROSSOPROMODORO og gjafabréf á Nesvöllinn fyrir tvo 2017
3. sæti: 10.000 kr. gjafabréf á Rauða Ljónið og gjafabréf á Nesvöllinn fyrir tvo 2017

25. sæti: Einn tími í golfkennslu hjá Nökkva Gunnarssyni golfkennara Nesklúbbsins

BESTA SKOR:

1. Steikarveisla fyrir tvo á Steikhúsinu og gjafabréf á Nesvöllinn fyrir tvo 2017

NÁNDARVERÐLAUN:

2./11. braut: 5.000 kr. gjafabréf á Rauða Ljónið og gjafabréf á Nesvöllinn fyrir tvo 2017
5./14. braut: 5.000 kr. gjafabréf á Rauða Ljónið og gjafabréf á Nesvöllinn fyrir tvo 2017

Þátttökugjald aðeins kr. 4.000