Nokkur laus sæti á námskeið í sumar

Nesklúbburinn


Laus sæti á neðandgreind námskeið sem hefjast 7. maí

Æfingar kvenna (1 laust sæti) 

Á þriðjudögum kl. 17 til 18. 

Mismunandi viðfangsefni í hverjum tíma. Farið verður yfir brautarhögg, teighögg, höggin í kringum flatirnar, púttin,  og sandhöggin. 

Samtals 10 skipti í sumar. Fyrsti tími 7. maí og svo vikulega til 16. júlí að undanskyldum 2. júlí þegar Meistaramót klúbbsins er í gangi. 

Verð 47.500.-

Innifalið er kennslan, æfingaboltar og golfkennslubókin GæðaGolf.

Skráning á nokkvi@nkgolf.is 

 

Stutta spilið (2 laus sæti)

Á þriðjudögum kl. 18.30 til 19.30.

Farið verður yfir öll helstu höggin sem þarf að kunna í kringum flatirnar og púttin. Áhersla lögð á góða tækni og hvernig best og skemmtilegast er að æfa sig í formi keppnislíkra æfinga.

Samtals 8 skipti í sumar. Fyrsti tími 7. maí og svo vikulega til og með 25. júní.

Verð 38.000.-

Innifalið er kennslan, æfingaboltar og golfkennslubókin GæðaGolf.

Skráning á nokkvi@nkgolf.is