Hið glæsilega og stórskemmtilega NTC hjóna- og paramót verður haldin á laugardaginn. Það verður öllu tjaldað til í þessu veglega móti, skráning er hafin á golf.is og því um að gera að skrá sig sem fyrst.
Nánari upplýsingar og skráning í mótið má sjá á golfbox eða með því að smella hér. Skráningu lýkur á föstudaginn kl. 11.00.
Ath. það þarf að skrá báða einstaklinga inn í mótið á sama tíma svo allt sé á hreinu hver spilar með hverjum.
Komdu og vertu með í frábæru móti
Mótanefnd