Öldungabikar NK – holukeppni fyrir 50 ára og eldri

Nesklúbburinn

Öldungabikarinn er nýtt mót fyrir eldri kylfinga Nesklúbbsins, karla og konur.  Leikið verður eftir holukeppnisfyrirkomulagi án forgjafar.  Leiknir verða 6 níu holu hringir, tveir á dag.  Keppendur raðast samkvæmt Monrad kerfi.  Leikdagar eru 4., 8 og 10. ágúst, ræst út frá kl. 17.00.

Allar konur og karlar í Nesklúbbnum sem eru eða verða 50 ára á árinu geta tekið þátt.  Keppendum er raðað í upphafi eftir forgjöf en síðan eftir vinningum.  Þeir keppa innbyrðis sem eru næstir í röðinni eftir hvern hring.  Sá vinnur sem er efstur á listanum eftir 6 hringi.

Veitt verða verðlaun fyrir efsta sætið og til þess sem færir sig um flest sæti upp á við. 

Verðlaun: Gjafabréf frá WOW

Skráning er hafin á golf.is: Öldungabikar NK, 4. ágúst

þátttökugjald: kr. 2.000