Öldungabikarinn á morgun – skráning í gangi

Nesklúbburinn

Öldungabikarinn er stórskemmtilegt mót fyrir kylfinga Nesklúbbsins, karla og konur.  Leikið verður eftir holukeppnisfyrirkomulagi án forgjafar.  Leiknir verða 6 níu holu hringir, tveir á dag.  Keppendur raðast samkvæmt Monrad kerfi.  Leikdagar eru 20., 23., og 26. júlí, ræst út á öllum teigum samtímis kl. 17.00 nema sunnudaginn 26. júlí er ræst út kl. 14.00.

Allar konur og karlar í Nesklúbbnum sem eru eða verða 50 ára á árinu geta tekið þátt. Keppendum er raðað í upphafi eftir forgjöf en síðan eftir vinningum.  Þeir keppa innbyrðis sem eru næstir í röðinni eftir hvern hring.  Sá vinnur sem er efstur á listanum eftir 6 hringi.

Veitt verða verðlaun fyrir efsta sætið og til þess sem færir sig um flest sæti upp á við. Þetta er öðruvísi og mjög skemmtilegt mót fyrir alla meðlimi Nesklúbbsins 50 ára og eldri, óháð getustigi.

Hvetjum alla til að taka þátt: skráning fer fram á golfbox eða með því að smella hér