Öldungamótaröð og val í sveitir heldri kylfinga

Nesklúbburinn

Öldungamótaröð NK er ný mótaröð sem verður leikin í sumar.  Samtals verða 8 mót og 5 bestu telja hjá hverjum kylfingi.  Þrjú af þeim mótum eru inni í fimmtudagsmótunum en önnur 5 á mánudögum samkvæmt mótaskrá.

 Reglugerð:

 – Heimild til þátttöku hafa:  Karlar 55+ og konur 50+
          Miðað er við ártal.

 – Til að vera með: þarf að tilkynna þátttöku og greiða þátttökugjald áður en
leikur hefst. 
Skráning er á þátttökublaði í kassanum við veitingasöluna.

– Leikfyrirkomulag: 18 holu punktakeppni*
          Hámarksforgjöf er gefin 36.

 – Rástímar: Keppendur geta hafið leik á milli kl. 09.00 og 18.00
          Heimilt er að leika með kylfingum sem ekki eru að taka þátt í mótaröðinni en æskilegt þykir
          að fólk pari sig saman með öðrum keppendum mótaraðarinnar.

 – Þátttökugjald:  er kr. 500 sem greiða skal í umslag í kassanum við
            veitingasöluna áður en leikur hefst.

 – Verðlaun: veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í flokki karla og kvenna.
            Fimm bestu mótin telja hjá hverjum kylfingi í punktakeppni með forgjöf.

Að öðru leyti gilda keppnisskilmálar Nesklúbbsins

 * Við val til Öldungasveita Nesklúbbsins verður stuðst við punktakeppni án forgjafar


VAL Í SVEITIR HELDRI KYLFINGA

Kvennasveit kvenna 50+

Liðsstjóri: Tilkynnt síðar

 – Sex konur valdar þar af tveir varamenn

– Sigurvegari í Öldungaflokki KVK í Meistaramóti

– Sigurvegari kvenna á öldungamótaröð NK

– Kylfingur sem á sæti í landsliði gefur sæti í Sveit NK

– Liðsstjóri velur aðra leikmenn

Til hliðsjónar við það val skal horft m.a. til árangurs og framgöngu í eftirfarandi mótum: öldungamótaröð NK, Meistaramóti NK (bæði öldungaflokki og öðrum flokkum), árangur á LEK mótaröðinni,  Íslandsmóti öldunga ásamt öðrum opnum mótum, reynslu og æfingasókn.

Sveitakeppnin fer fram helgina 17. ? 19. ágúst og skal val leikmanna tilkynnt eigi síðar en 20. júlí að því gefnu að það verði sveitakeppni fyrir NK-konur 50+.

Sveit karla 55 – 69 ára

Liðsstjóri: Þráinn Rósmundsson

– Allt að átta karlar valdir þar af tveir varamenn

– Sigurvegari í Öldungaflokki Meistaramóts 55 ? 69 ára.

– Sigurvegari karla í öldungamótaröð NK

– Kylfingur sem á sæti í landsliði gefur sæti í Sveit NK

– Liðsstjóri velur aðra leikmenn

Til hliðsjónar við það val skal horft m.a. til árangurs og framgöngu í eftirfarandi mótum: öldungamótaröð NK, Meistaramóti NK (bæði öldungaflokki og öðrum flokkum), árangur á LEK mótaröðinni,  Íslandsmóti öldunga ásamt öðrum opnum mótum og reynslu.

Sveitakeppnin fer fram helgina 17. ? 19. ágúst og skal val leikmanna tilkynnt eigi síðar en 20. júlí.