Opna Coca-Cola verður á sunnudaginn

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Opna COCA – COLA mótið, elsta opna golfmót á Íslandi fer nú fram í 63. skiptið í ár á Nesvellinum sunnudaginn 11.ágúst . Rástímar eru frá kl. 08.00 – 10.00 og 13.00 – 15.00.

Mótsfyrirkomulag: Höggleikur án forgjafar og punktakeppni með forgjöf.
Hámarksforgjöf gefin: karlar: 28 (teigar 49) og Konur: 28 (teigar 44).

VERÐLAUN:

Höggleikur:

1. sæti:  40.000 kr. gjafabréf + kassi af kók í dós
2. sæti:  30.000 kr. gjafabréf + kassi af kók í dós
3. sæti:  20.000 kr. gjafabréf + kassi af kók í dós
25. sæti: 10.000 kr. gjafabréf+kassi af kók í dós
60. sæti: 10.000 kr. gjafabréf+kassi af kók í dós

Punktakeppni með forgjöf:

1. sæti: 40.000 kr. gjafabréf + kassi af kók í dós
2. sæti: 30.000 kr. gjafabréf + kassi af kók í dós
3. sæti: 20.000 kr. gjafabréf + kassi af kók í dós

Nándarverðlaun:

2./11. braut: Gjafabréf + kassi af kók í dós
5./14. braut: Gjafabréf + kassi af kók í dós

Ef tveir eða fleiri kylfingar verða jafnir með besta skor án forgjafar skal leikinn bráðabani til að útkljá sigurvegara. Ef fleiri en tveir kylfingar eru jafnir með besta skor skal leikið til þrautar um öll verðlaunasæti. Annars ræður betri seinni 9 hringur til um í hvaða sæti kylfingar raðast ef kylfingar eru jafnir í 2. eða 3. sæti.

Skráning hafin á golfbox eða með því að smella hér.