OPNA NESSKIP á sunnudaginn

Nesklúbburinn

Sunnudaginn 2. júní, verður haldið opið mót á Nesvellinum þar sem allur ágóði rennur til unglingastarfs Nesklúbbsins. Mótið er haldið í samstarfi við NESSKIP.

Leikið verður eftir punktafyrirkomulagi og veitt verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í punktakeppni með forgjöf og fyrir besta skor. Einnig verða nándarverðlaun á par 3 holum.

Mótið er opið öllum kylfingum.

Hámarksforgjöf gefin: karlar: 28 og konur: 36.

VERÐLAUN:

PUNKTAKEPPNI

1. sæti: 30.000 kr. gjafabréf í NTC og gjafabréf fyrir tvo á Nesvöllinn 2019
2. sæti: 20.000 kr. gjafabréf í NTC og gjafabréf fyrir tvo á Nesvöllinn 2019
3. sæti: 15.000 kr. gjafabréf í NTC og gjafabréf fyrir tvo á Nesvöllinn 2019

BESTA SKOR:

1. 30.000 kr. gjafabréf í NTC og gjafabréf fyrir tvo á Nesvöllinn 2019

NÁNDARVERÐLAUN:

2./11. braut: 10.000 kr. gjafabréf í NTC og gjafabréf fyrir tvo á Nesvöllinn 2019 
5./14. braut: 10.000 kr. gjafabréf í NTC og gjafabréf fyrir tvo á Nesvöllinn 2019

Teiggjöf: Kassi af sportþrennu frá Lýsi

Skráning hefst á golf.is laugardaginn 25. maí kl. 09.00 og stendur til laugardagsins 1. júní kl. 16.00.

Þátttökugjald kr. 3.900