Púttmót á sunnudaginn

Nesklúbburinn

Næsta púttmót fer fram sunnudaginn 27. janúar á milli kl. 11.00 og 13.00.  Þennan sunnudag einnig  „tveir fyrir einn“, þ.e. það fá allir tvo 18 holu pútthringi fyrir 500 kallinn og mun sá betri telja. 

Einnig verða veitt sérstökaukaverðlaun fyrir 10. sætið.

Reglurnar eru eftirfarandi:

* Leiknar eru 18 holur og kostar hver hringur kr. 500
* Óheimilt er að leika „keppnishringinn“ áður en leikur hefst en heimilt verður að hita upp eins og hver og einn vill.
* Heimilt er að spila fleiri en einn hring hverju sinni og kostar þá hver aukahringur kr. 500 en eingöngu besti hringurinn telur.
* Hægt er að hefja leik á milli kl. 11.00 og 13.00
* Verði tveir eða fleiri jafnir í verðlaunasætum telja fyrst seinni 9, svo síðustu 6, þá síðustu 3 og að lokum síðasta holan.  Verði keppendur ennþá jafnir verður varpað hlutkesti.

Sjáumst hress í Risinu á sunnudaginn,
Mótanefnd