Púttmót á sunnudaginn

Nesklúbburinn

Það verður að sjálfsögðu púttmót fyrir félagsmenn Nesklúbbsins í Risinu á sunnudaginn eins og venjulega.  Eina sem þarf að gera er að mæta með pútterinn og kúlu einhverntíman á milli 11.00 og 13.00.  

Sigurvegari í síðustu viku var Rúnar Geir Gunnarsson.

Verðlaunin í hverri viku verða eftirfarandi:

1. sæti: Klukkutími í golfherminum og hálftími í Flightscope höggnemanum
2. sæti: Klukkutími í golfherminum
3. sæti: hálftími í Flightscope höggnemanum

Reglurnar eru eftirfarandi:

* Leiknar eru 18 holur og kostar hver hringur kr. 500
* Óheimilt er að leika „keppnishringinn“ áður en leikur hefst en heimilt verður að hita upp eins og hver og einn vill.
* Heimilt er að spila fleiri en einn hring hverju sinni og kostar þá hver aukahringur kr. 500 en eingöngu besti hringurinn telur.
* Hægt er að hefja leik á milli kl. 11.00 og 13.00
* Verði tveir eða fleiri jafnir í verðlaunasætum telja fyrst seinni 9, svo síðustu 6, þá síðustu 3 og að lokum síðasta holan.  Verði keppendur ennþá jafnir verður varpað hlutkesti.