Púttmót á sunnudaginn

Nesklúbburinn

Eins og alla sunnudaga stendur Nesklúbburinn fyrir púttmóti fyrir félagsmenn núna á sunnudaginn.  Það var frábær aðsókn í janúar og við hvetjum alla félagsmenn til að mæta.  Síðasta sunnudag var líka næstur holu keppni í golfherminum sem mæltist ákaflega vel fyrir og verður slík keppni haldin öðru hverju samhliða völdum púttmótum í vetur og verður þá auglýst sérstaklega.  Sigurvegari í næstur holu keppninni síðasta sunnudag var Gauti Grétarsson en hann var 1,35 metra frá holu.

Hægt er að hefja leik í púttmótinu á milli kl. 11.00 – 13.00 og eru eins og áður sagði allir hvattir til að mæta, taka einn pútthring og fá sér kaffisopa.  Þátttökugjald aðeins kr. 500.-

Verðlaun fyrir efstu sætin í bæði karla- og kvennaflokki í púttmótinu eru:

1. sæti: Klukkutími í golfherminum og hálftími í Flightscope höggnemanum
2. sæti: Klukkutími í golfherminum
3. sæti: hálftími í Flightscope höggnemanum