Púttmót og næstur holu á sunnudaginn

Nesklúbburinn

Það verður að sjálfsögðu púttmót í Risinu á Eiðistorgi á sunnudaginn á milli kl. 11.00 og 13.00.  Mætum öll, hittum vini og kunningja úr klúbbnum í skemmtilegum pútthring og kaffibolla á eftir þar sem að Hjalti er alltaf með heitt á könnuni.  Öll púttmótin eru sjálfstæð mót, þ.e. það þarf ekkert að taka þátt í öllum mótunum til þess að vera með. 

Vinningshafar í efstu þremur sætunum í hverju móti vinna sér einnig inn þátttökurétt í lokamótinu sem haldið verður í framhaldi af síðasta púttmóti vetrarins og verður það nánar auglýst síðar.

Næsta sunnudag verður einnig haldin „næstur holu“ keppni.  Þannig fá allir þeir sem að taka þátt í púttmótinu tvö högg í golfherminum á einni af þeim stórkostlegu par 3 holum sem golfhermirinn býður uppá. Þess má geta að holan er um 100 metra löng og er því um að gera að taka með sér kylfu við hæfi. 

Reglurnar eru eftirfarandi:

* Leiknar eru 18 holur og kostar hver hringur kr. 500
* Óheimilt er að leika „keppnishringinn“ áður en leikur hefst en heimilt verður að hita upp eins og hver og einn vill.
* Heimilt er að spila fleiri en einn hring hverju sinni og kostar þá hver aukahringur kr. 500 en eingöngu besti hringurinn telur.
* Hægt er að hefja leik á milli kl. 11.00 og 13.00
* Verði tveir eða fleiri jafnir í verðlaunasætum telja fyrst seinni 9, svo síðustu 6, þá síðustu 3 og að lokum síðasta holan.  Verði keppendur ennþá jafnir verður varpað hlutkesti.