Síðasta þriðjudagsmót kvenna á morgun

Nesklúbburinn

Sjötta og síðasta þriðjudagsmót kvenna fer fram á morgun, þriðjudaginn 9. ágúst.  Eins og ávallt, bara mæta og skrá á þar til gerð blöð í kassanum góða í veitingasölunni og greiða þátttökugjald sem er kr. 1.000.-  

Lokamót NK-kvenna fer svo fram sunnudaginn 28. ágúst þannig að það er um að gera að taka daginn frá.  Mótið verður auglýst nánar þegar nær dregur.