Sigurður Runólfsson fyrrverandi formaður Nesklúbbsins látinn

Nesklúbburinn

Sigurður H.B. Runólfsson, eða Siggi Run eins og flestir félagsmenn kölluðu hann lést á Landspítalanum sunnudaginn 3. september síðastliðinn.  Sigurður var formaður Nesklúbbsins á árunum 1981-1986 og sendir klúbburinn aðstandendum öllum samúðarkveðjur.

Útför Sigurðar verður gerð frá Seltjarnarneskirkju þriðjudaginn 19. september kl. 13.00.