Skráning hafin í Jónsmessumótið á föstudaginn

Nesklúbburinn

Hið bráðskemmtilega Jónsmessumót verður haldið föstudaginn 23. júní nk.  Í þessu móti er það hvorki getan né metnaðurinn sem ræður ríkjum heldur er það gleðin og góða skapið því þetta er bara gaman. Ræst verður út af öllum teigum kl. 19.00 og verður happy-hour í veitingasölunni frá klukkan 17.30. 

Leikið verður eftir texas-scramble fyrirkomulagi á léttu nótunum þar sem margt verður brallað, m.a. afbrigðilegar holustaðsetningar, nándarverðlaun á  9. braut, lukku-púttholan og margt, margt fleira.

Að sjálfsögðu verður búningakeppni eins og venjulega og  þemað í ár er: hvítt, blátt og rautt í tilefni af þátttöku Íslenska kvennalandsliðsins í Knattspyrnu á EM í Frakklandi 

Að móti loknu verður svo standandi veisluhlaðborð að hætti Hafsteins og félaga ásamt verðulaunaafhendingu.

MÓTANEFND DREGUR SAMAN Í LIÐ.

Skráning er hafin á töflunni úti í golfskála – einnig hægt að hringja í síma 561-1930.  Skráningu lýkur á fimmtudaginn kl. 18.00

VINSAMLEGAST SKRÁIÐ YKKUR TÍMANLEGA OG MÆTIÐ EIGI SÍÐAR EN HÁLFTÍMA FYRIR LEIK TIL AÐ AUÐVELDA ALLA VINNU MÓTANEFNDAR.

Aldurstakmark í Jónsmessumótið og mat er 20 ára

Mót og matur = kr. 4.500
Aðeins mót = kr. 2.000
Aðeins matur = kr. 3.500