Mótanefnd hefur nú gefið út áætlaða leikdaga allra flokka fyrir Meistaramótið 2018 sem hefst laugardaginn 30. júní.
Smávægilegar breytingar hafa verið gerðar frá síðasta ári. Þannig eru flokkar 50+ nú eingöngu höggleikur í bæði karla- og kvennaflokki. Karlar leika af teigum 53 og konur af teigum 47.
Í flokki 65+ verður leikið bæði í höggleik og punktakeppni. Karlar og konur leika af teigum 47.
Kylfingar sem eru 65 ára og eldri hafa um það val hvort þeir skrá sig í 50+ eða 65+.
Í drengjaflokki 14 ára og yngri verður leikið eftir punktafyrirkomulagi.
Annað er óbreytt í flokkaskiptingum frá fyrra ári en annars má sjá niðurröðun flokkanna hér.
Athugið að þetta er áætlun og tímarnir geta breyst þegar að ljóst er hver endanlegur fjöldi verður í hvaða flokki fyrir sig. Það verður gefið út endanlega föstudaginn 29. júní.
Skráning hefst á morgun, miðvikudaginn 20. júní og lýkur fimmtudaginn 28. júní kl. 22.00