Skráning í Meistaramótið hefst á morgun

Nesklúbburinn

Meistaramót Nesklúbbsins 2016 fer fram vinkuna 2. til 9. júlí.  Meistaramótið er án efa stærsti viðburður klúbbsins á hverju ári þar sem leikið er í 15 mismunandi flokkum sem skiptast upp eftir forgjöf eða aldri.  Ein breyting hefur verið gerð í niðurröðun flokka í mótinu.  Aldursskipting í öldungaflokkum karla og kvenna hefur verið samræmd fyrirkomulagi LEK, Landssambandi eldri kylfinga og verða því tveir flokkar hjá báðum kynum, 50 – 64 ára og 65 ára og eldri, miðað er við almanaksár.  

Skráning í mótið hefst á morgun, fimmtudaginn 16. júní og fer eins og venjulega eingöngu fram í möppunni góðu sem staðsett er í golfskálanum.

Niðurröðun flokkanna má sjá hér á síðunni undir „um NK / skjöl“.  Athugið að það er áætlun og miðast við fjölda þátttakenda í hverjum flokki 2015.  Verði mikil breyting á milli flokka gæti þessi áætlun breyst, en endanleg niðurröðun verður ljós föstudaginn 1. júlí.