Meistaramót Nesklúbbsins, það 49. í röðinni, hófst í blíðskaparveðri klukkan sjö í morgun, laugardaginn 30. júní. Sjö flokkar hófu leik í dag, 2. og 3. flokkur kvenna, 3. og 4. flokkur karla og þrír öldungaflokkar. Góð tilþrif og flott skor sáust víða í dag og ljóst að spennandi keppni er framundan næstu daga. Veðurguðirnir voru keppendum hliðhollir og vonandi að veðurblíðan haldi áfram út vikuna.
Staða efstu keppenda er birt hér að neðan og verður uppfærð hér á nkgolf.is á meðan meistaramóti stendur. Einnig má nálgast stöðu allra keppenda og allra flokka á golf.is.
4. flokkur karla
Í 4. flokki karla er leikin punktakeppni og sáust ágætis skor hjá mönnum í dag. Hér að neðan má sjá stöðu efstu manna að loknum fyrsta degi:
1. Björgvin Schram 37 punktar
2. Eggert Benedikt Guðmundsson 35 punktar
3.-4. Lárus Guðmundsson 32 punktar
3.-4. Pétur Ívarsson 32 punktar
3. flokkur karla
Kylfingar í 3. flokki karla áttu margir hverjir mjög góðan dag og þeir sem verma efstu sætin léku langt undir forgjöf. Efstur eftir daginn er Jón Ingvar Jónasson sem lék á 83 höggum, frábær hringur hjá Jóni sem skilaði honum 43 punktum. Sjá nánari stöðu hér að neðan:
1. Jón Ingvar Jónasson 83 högg
2. Árni Indriðason 86 högg
3. Jóakim Þór Gunnarsson 87 högg
4. Sverrir Davíðsson 89 högg
5. Friðþjófur A Árnason 90 högg
2. flokkur kvenna
Góð skor sáust einnig í 2. flokki kvenna og ljóst að þær sem eru í efstu sætunum lækkuðu forgjöf sína talsvert í dag. Jónína Lýðsdóttir er með fimm högga forskot eftir fyrsta dag en stutt er í næstu sæti þar sem staðan er mjög jöfn. Sjá stöðu efstu kvenna hér að neðan:
1. Jónína Lýðsdóttir 91 högg
2. Guðný Helgadóttir 96 högg
3. Guðrún Valdimarsdóttir 98 högg
4. Hulda Bjarnadóttir 99 högg
5. Bjargey Aðalsteinsdóttir 100 högg
3. flokkur kvenna
Í 3. flokki kvenna er spiluð punktakeppni líkt og í 4. flokki karla og hefur sú nýbreytni mælst nokkuð vel fyrir. Sjá stöðu efstu kvenna her að neðan:
1. Karitas Kjartansdóttir 34 punktar
2. Fjóla Guðrún Friðriksdótti 31 punktur
3. Unnur Halldórsdóttir 27 punktar
4. Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir 21 punktur
Karlar 55 – 69 ára
Staðan í flokki 55-69 ára karla er jöfn og ljóst að hörð barátta er framundan um efstu sætin. Arngrímur Benjamínsson leiðir á 76 höggum, landsliðsmaðurinn Eggert Eggertsson er þremur höggum á eftir Arngrími og Þorkell Helgason er þriðji á 81 höggi. Staða efstu manna:
1. Arngrímur Benjamínsson 76 högg
2. Eggert Eggertsson 79 högg
3. Þorkell Helgason 81 högg
4. Jóhann Reynisson 82 högg
5. Ragnar Ómar Steinarsson 84 högg
Karlar 70 ára +
Staðan í flokki 70 ára og eldri er mjög jöfn og ljóst að keppni þar verður mjög spennandi.
Kjartan L Pálsson leiðir með einu höggi og eitt högg skilur einnig að annað og þriðja sætið.
1. Kjartan Lárus Pálsson 85 högg
2. Jón Hallgrímsson 86 högg
3. Walter Lúðvík Lentz 87 högg
4. Haraldur Kristjánsson 88 högg
5. Ólafur A Ólafsson 93 högg
Öldungaflokkur kvenna
Kristín Jónsdóttir leiðir Öldungaflokk kvenna að loknum fyrsta degi, Kristín spilaði á 97 höggum og hefur fimm högga forskot á Rannveigu Laxdal Agnarsdóttur.
1. Kristín Jónsdóttir 97 högg
2. Rannveig Laxdal Agnarsdóttir 102 högg
3. Bára Guðmundsdóttir 107 högg