Mánudaginn 25. maí nk., annan í hvítasunnu fer fram Styrktarmót unglinga á Nesvellinum í samstarfi við NESSKIP þar sem allur ágóði mótsins rennur til unglingastarfs Nesklúbsins. Leikið verður eftir punktafyrirkomulagi og er mótið opið öllum kylfingum. Ræst verður út eins og venjulega á milli kl. 08.00 og 10.00 og svo aftur á milli 13.00 og 15.00. Skráning og nánari upplýsingar má sjá á golf.is