Þér er boðið á fyrirlestur

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Nesklúbburinn býður félagsmönnum sínum á fyrirlestur um þjálfun kylfinga og leiðir til að bæta líkamsástand hjá Gauta Grétarssyni sjúkraþjálfara.

Fyrirlesturinn verður haldinn fimmtudaginn 3 október kl. 20.00 í aðstöðu Sjúkraþjálfunar Reykjavíkur að Fiskislóð 1.

Aðeins 30 sæti í boði, tilkynna þarf þátttöku á viðburðinn á Golfbox eða með því að smella hér.

Lýðheilsunefnd