Þrjú úr Nesklúbbnum í landsliði LEK

Nesklúbburinn Almennt

Á hverju ári sendir Landssamband eldri kylfinga (LEK) fjölmörg landslið til keppni víðsvegar í Evrópu.  Þetta árið unnu þrír kylfingar sér inn sæti í jafnmörgum landsliðum og munu því keppa fyrir hönd Íslands á Evrópumótum núna í lok júní og byrjun júlí.  Aðalsteinn Jónsson mun ríða á vaðið á Evrópumótinu í El Rompido á Spáni, 23 til 25. júní í flokki 55 ára og eldri.  Elsa Nielsen keppir í flokki 50 ára og eldri á Trophy keppninni á Praia D’el Rey, Portúgal, 1 til 4.júlí og sömu daga mun Ágústa Dúa Jónsdóttir keppa á West Cliffs, Portúgal,  1-4 júlí í flokki 65 ára og eldri.  Sannarlega frábær árangur hjá okkar fólki og óskum við þeim að sjálfsögðu góðs gengis. Þess má geta að Eggert Eggertsson og Þyrí Valdimarsdóttir úr Nesklúbbnum gegna hlutverki Formanns og Ritara stjórnar LEK.

LEK stendur fyrir metnaðarfullri mótaröð á hverju sumri sem samanstendur af 7 mótum.  Hvert mót er sjálfstætt mót þar sem keppt er bæði í höggleik og í punktakeppni ásamt því að vera keppni í stigum til að komast í landslið.

Allt um LEK má sjá með því að smella hér.