Fyrsta 18 holu mót sumarsins, ECCO forkeppnin fór fram á Nesvellinum í dag. ECCO mótið er innanfélagsmót og er eins og venjulega sjálfstætt mót en um leið forkeppni fyrir bæði bikarkeppni klúbbsins og Klúbbmeistarann í holukeppni. Í bikarkeppninni komast áfram 32 efstu í punktakeppni með forgjöf og fyrir klúbbmeistarann í holukeppni komast 16 efstu áfram í höggleik án forgjafar úr mótinu í dag. Það var 101 þátttakandi í mótinu og urðu helstu úrslit eftirfarandi:
Höggleikur:
1. sæti: Ólafur Marel Árnason – 70 högg
2. sæti: Kristinn Arnar Ormsson – 75 högg
3. sæti: Pétur Steinn Þorsteinsson – 75 högg
Punktakeppni:
1. sæti: Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir – 40 punktar
2. sæti: Bjarni Þórður Bjarnason – 37 punktar
3. sæti: Elísabet Þóra Ólafsdóttir – 37 punktar
Nándarverðlaun:
2./11. braut: Viðar Lúðvíksson – 3,05 m frá holu
5./14. braut: Haukur Karlsson – 2,54 metra frá holu
9./18. braut: Arnar Óli Sigþórsson – 2,97 metra frá holu
Hægt er að sjá frekari úrslit með því að smella hér.
Niðurröðun fyrir holukeppnirnar, þ.e. bikarkeppnina og klúbbmeistara í holukeppni ásamt rástímum verður birt á Golfbox síðar í kvöld. Leikdagar hafa verið birtir á rástímunum á Golfbox og heimasíðunni (smella hér). Nákvæmar tímasetningar eru sendar í skilaboðum til keppenda.
Reglugerð fyrir holukeppnirnar má sjá með því að smella hér.
Verðlaunahafar geta vitjað verðlauna sinna á skrifstofunni eftir helgi.