Vetrar- og inniaðstaða Nesklúbbsins opnar á morgun

Nesklúbburinn

Hin nýja inniaðstaða Nesklúbbsins opnar á morgun, þriðudaginn 20. desember.  Aðstaðan er staðsett á Eiðistorgi, nánar tiltekið uppi  á 3. hæð og er lyftan inni í Hagkaup tekin þangað upp.

Félagsmenn og allir íbúar á Seltjarnarnesi eru hvattir til þess að láta kíkja í heimsókn, hvort heldur er til þess að æfa sig í golfi eða bara til að kíkja á hvað er í boði.  Heitt á könnunni.

Opnunartímar í desember:

Virkir dagar á milli kl. 13.00 og 23.00

Nánari upplýsingar um inniaðstöðuna má sjá á heimasíðu klúbbsins: nkgolf/kennsla/inniaðstaða