Nýjar rástímareglur – búið að opna fyrir skráningu

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæru félagsmenn, Nú hefur verið opnað fyrir rástímaskráningu á Golfbox.  Eins og fram hefur komið verða teknar í gildi nýjar reglur fyrir rástímabókanir í sumar í takt við aðra golfklúbba á höfuðborgarsvæðinu.  Markmiðið með þessum breytingum er umfram allt að auka skilvirkni og minnka “hamstur” þannig að sem flestir félagsmenn eigi möguleika á því að fá rástíma þegar þeir vilja …

Nesvellir loka fyrir sumarið og æfingasvæðið er opið

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæru félagsmenn, Nesvellir, inniaðstaða klúbbsins mun nú loka frá og með morgundeginum, 1. maí.  Æfingar barna- og unglinga munu þó halda þar áfram fram að skólalokum. Æfingasvæði klúbbsins úti á golfvelli hefur verið opnað, bæði er boltavélin komin í gang og eins hafa verið sett flögg á púttflötina og æfingaflatirnar.  Þeirri nýjung hefur verið komið á að hægt er að …

Hreinsunardeginum og opnun vallarins frestað um viku

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæru félagsmenn, Eftir stöðufund í gær var ákveðið að fresta hreinsunardeginum um viku og þá um leið opnun vallarins og veitingasölunnar.  Ástæðan er einfaldlega sú að völlurinn er bara ekki alveg kominn í það ástand sem við höfðum vonast eftir.  Það er margt sem týna má til en umfram allt byggist ákvörðunin fyrst og fremst á ástandi flatanna.  Það hefur …

Úrslit úr Trackman Styrktarmóti barna- og afreksstarfs

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Dagana 28. mars – 16. apríl héldum við opið golfhermamót til styrktar barna- og afreksstarfs Nesklúbbsins. Alls tóku 50 manns þátt í mótinu og voru glæsileg verðlaun í boði frá Nesklúbbnum, Ráðagerði, Brútta, World Class, Apótek Kitchen & Bar, Laugar Spa, Hamborgarabúllunni, GG Sport, Húrra, Domino’s, Done, Golfklúbbnum Leyni, Golfklúbbi Mosfellsbæjar, Golfklúbbi Kiðjabergs og ÓJK-Ísam. Helstu úrslit úr mótinu má …

Gleðilegt sumar – það styttist í opnun

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Gleðilegt sumar kæru félagar, Það er vonandi að dagurinn í dag sé undanfari þess sem koma skal – sólríkur dagur á Nesvellinum þar sem hitastigið fór í 14 gráður og margir sem nutu veðurblíðunnar. Opnun vallarins og veitingasölunnar verður að öllu óbreyttu laugardaginn 3. maí þegar Hreinsunardagurinn verður haldinn.  Dagurinn markar eins og alltaf upphafið af nýju golftímabili hjá félagsmönnum …

Vinnudagur á morgun

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæru félagar, Það er svo sannarlega vor í lofti þessa dagana og ætlum við að nýta það til þess að taka annað áhlaup á völlinn okkar eftir veðurofsann í vetur.  Það var frábær mæting á þá vinnudaga sem haldnir voru í byrjun mars sem undirstrikar enn og aftur samstöðuna í klúbbnum okkar – hún er náttúrulega einstök.  Nú leitum við …

Formannspistill

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæru félagar í Nesklúbbnum, Ég vil byrja á að þakka ykkur öllum sem tókuð þátt í hreinsunarstörfum á vellinum okkar á Suðurnesi eftir náttúrhamfarirnar í byrjun mánaðarins. Það er virkilega ánægjulegt að sjá þessa miklu samstöðu félaganna sem vakið hefur athygli langt út fyrir landhelgina og sýnir enn og aftur að Nesklúbburinn er miklu meira en bara hefðbundinn golfklúbbur. Það …

Opið golfhermamót til styrktar barna- og afreksstarfs NK

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir

Kæru félagar. Dagana 28. mars – 16. apríl fer fram opið golfhermamót til styrktar barna- og afreksstarfs Nesklúbbsins. Þátttökurétt hafa allir kylfingar með virka Trackman forgjöf og hafa spilað amk tvo hringi sem telja til forgjafar í Trackman. Við hvetjum áhugasama að sjálfsögðu til að panta sér tíma á Nesvöllum og taka þátt, en bendum þó einnig á að það …

Annar í hreinsun

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir, Unglingastarf

Kæru félagar, Á sunnudaginn milli kl 11 og 13 er komið að öðru áhlaupi í hreinsun á vellinum okkar. Við erum ómetanlega þakklát fyrir þá samheldni sem er í klúbbnum okkar og hversu félagar eru boðnir og búnir að aðstoða við að gera völlinn okkar fínan fyrir sumarið. Fyrirkomulagið er eins og síðast, ráðumst á braut 3 og 7 og …

Hreinsun

Nesklúbburinn Almennt, Póstlistar allir, Unglingastarf

Fyrsti í hreinsun Bara minna á að við ætlum að byrja að hreinsa grjót og möl af vellinum okkar á morgun laugardag kl 11:00. Hittumst við vélaskemmuna. Væri frábært ef þið getið tekið með ykkur skóflu, fötu eða hjólbörur. Við verðum að sjálfsögðu með eitthvað af því á staðnum. Spáin er góð, bara mæta með góða skapið og byrja að …