Ný námskeið fyrir heldri kylfinga

Nesklúbburinn

Seinnipart október fara af stað 8 vikna (1 x í viku) ný námskeið í Risinu á Eiðistorgi fyrir heldri kylfinga. Námskeiðin eru bæði hugsuð fyrir styttra komna og einnig fyrir vanari kylfinga. Hver æfingatími er ein klukkustund og eru tímarnir að mestu byggðir upp á stöðvaþjálfun.  Markmið námskeiðanna er að vinna í öllum þáttum golfleiksins bæði í Trackman golfhermum og á æfingaflötinni í Risinu.  Steinn Baugur Gunnarsson golfkennari mun sjá um þjálfunina. Námskeiðin eru frábært tækifæri til þess að vinna í sveiflunni og skerpa á stutta spilinu yfir haust- og vetrartímann sem og til þess að hittast og hafa gaman saman í golfi yfir vetrarmánuðina.  Eftir hvern tíma verður heitt á könnunni.

Tímasetningar námskeiðanna í boði eru fyrir hádegi virka daga.

Þáttökugjald á 8 vikna námskeið 1 x í viku er 32.000kr

Nánari upplýsingar um námskeiðin og skráningu veitir Steinn golfkennari á netfanginu steinngunnars@gmail.com eða í síma 823-7606