Aðalfundur Golfklúbbs Ness – Nesklúbbsins verður haldinn í golfskála félagsins fimmtudaginn 28. nóvember nk. kl. 19.30.
Dagskrá:
- Fundarsetning
- Kjör fundarstjóra og fundarritara
- Lögð fram skýrsla formanns
- Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
- Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir undir atkvæði.
- Lagðar fram tillögur um breytingar á lögum félagsins ef um er að ræða.
- Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
- Ákveðið árgjald félaga fyrir næsta starfsár.
- Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga skv. 9. gr. laga.
- Önnur mál.