Fyrsta púttmót vetrarins var haldið á sunnudaginn í Risinu á Eiðistorgi. Arnar Friðriksson átti besta hring dagsins en hann lék á 29 höggum. Í kvennaflokki sigraði Rannveig Laxdal á 31 höggi. Í aukakeppni dagsins sem var „næstur holu“ í golfherminum sigraði Jón Ólafsson en hann var 1,302 metra frá holu. Sigurvegarar dagsins geta nálgast verðlaun sín hjá Hjalta í Risinu.
Næsta púttmót fer fram næsta sunnudag og eru félagsmenn hvattir til þess að mæta einhverntíman á milli 11.00 og 13.00 og taka þátt.